nú fara öll vopn til hliðar
og hendur upp í loft,
ég bið þig um að taka mig,
og fljúga með mig hátt,
opna gullna hliðið,
Já hleyptu mér inn,
Inn á vit ævintýranna.

Ég þrái það svo heitt,
Að komast í snertingu við draumana,
Að fá að vera með þér,
Að halda í höndina á þér.
Ég legg allt ráðabrugg til hliðar,
Gleymi öllum plönum,
Við byrjum uppá nýtt.
Sjáum hvert það fer.

Þú birtist mér í draumum mínum,
Segir mér hver þú ert.
Segir mér frá óskum þínum,
Segir mér hvað þú vilt.
Minn draumur er að hjálpa þér,
Að komast á þinn stað.
Ég þrái það að vera með þér,
á þessum einstaka stað.

Nú fara öll vopn til hliðar,
Og hendur upp í loft,
Hér er ég, taktu mig,
Fljúgðu með mig hátt,
Nú er það í þínum höndum,
Hvort þú lætur mig svífa áfram,
Eða rífur burt vængina.


btw. ég veit að þetta er óhefðbundið og blabla..
ég fýla óhefðbindni :)