Mitt fyrsta ljóð. Endilega koma með góðar ábendingar. Vonandi að ykkur líkar við það.

Annars manns draumur.

Þú gekkst eins og módel,
stóðst eins og stytta,
talaðir eins og söngkona,
hreyfðir þig eins og leikkona,
bræddir mig eins og ís.

Ég horfði á þig eins og sólsetur,
talaði um þig eins og meistaraverk,
hugsaði um þig eins og engil,
langaði í þig eins og ekkert annað.

En þú varst langt frá mér
og mínum saklausu draumum.
Þú varst annars manns draumur.