Þá er maður mættur á bókhlöðuna til lesturs fyrir endurtökupróf. Sem fyrr fer litlu minni tími í yrkingar en próflestur.

Hér sit ég einu sinni enn
og saman púsla bögu,
les um alls kyns mæta menn
merkilega sögu.

Lærdómsdug af dvala vek,
doðrant gegnum malla.
Euroréttin endurtek
og ekki hyggst ég falla…





…aftur.