Leikur um mig blessuð sumarblíðan,
bætir mig og alla mína líðan,
kætir mig með kærleiksgeislum sínum,
keikur ver í sólu dögum mínum.

Dreymir gullnar, gæfuríkar stundir.
Gumar bregða á leik um þessar mundir.
Sumarstraumur streymir hafs í róti,
streymir eftir tímans mikla fljóti.

en…

Síðan kemur kaldur vetur aftur,
kuldaljóð sín þylur hann, sá raftur.
Skuldadagur runninn, blessuð bjarta
blíðan hverfur mér svo skjótt úr hjarta.