Má ekki biðja þig blítt
að blífa hér svolítið lengur?
Frá oss þér ei getum ýtt,
þú árlegi guðsgjafar fengur!

Hví stopparu alltaf svo stutt?
Hví stríðiru okkur með förum?
Gætir þú ferð þína flutt,
og frestað í mánaðapörum?

Ef þú þér heldur oss hjá
og herjar með sólgeisla gosum
við sameinumst í gleði og sjá;
sólskinið launum þér brosum.



Datt svona í hug að einhverjum þætti gaman að lesa. Samdi líka lag við þetta núna áðan.