Sem andstyggilegt hatur
og heimsins versta stríð.
Svo ljúft og yndisfagurt,
svo friðsælt alla tíð.
Sem næturmyrkrið svartast,
og svarin vetrarhríð.
Sem guðdómlegur söngur
og sumarnóttin blíð.