Áður fyrr yljaði sól minni sál
en sumarið nú er að veði.
Nú logar svo eldheitt í brjósti mér bál
það brennur og rænir mig geði.
Nú reiður ég framleiði rjúkandi ál
sem rændi mig sumarsins gleði.