Ljóðskrifa áhuginn kviknaður hjá mér. Ég hef frekar gaman af þessu. Hvernig finnst ykkur þessi?


Þú ert hálfviti

Viskubrunnur í tómri tunnu?
ég tæpast uni þeirri trú.
Mælir munnur viti grunnu,
þitt morkna, þunna heilabú.



Hvað ertu að hugsa?

Gægast myndi gjarnan vilja
og gluggast um í huga þér.
Minnið rekja og þanka þylja.
Ég þyrði ef enginn vissi af mér.