skjálfti Með augun falin
bak við lokin ljós
ná hvít af ótta
skjálftans

undir fer lífið
í réttri röð
mynda þess

perlan mín
hvar ertu

andar ótt og títt
stingur sér inn
í
óreiðuna

kemur annar
dembist yfir
stendur
stekkur út

örmagna
með perlu

hjá sér.