Lítið notaður stælltur og þolmikill líkami
útlimir allir heilir og enn í ábyrgð
vel tenntur með röntgen vottorð ef óskað

getur spilað fyrir dansi og framkallað kímni
talar einungis þegar á hann er yrt
óvenju góð ending í hlustuninni

ATH! Selst í heilu lagi en skipti möguleg

heilinn getur fylgt sér í formalín krukku
“True words are never spoken”