Langt síðan ég skellti inn ljóði hér þannig að ég ákvað að gera það núna. Ég var ekkert að hugsa um ljóðstafi en samt reyndi ég nú smá með rímið þótt að það sé nú ekkert sérstaklega gott þannig ekki vera að gagnrýna mig mikið, ég get gert mun betur.



Brúnhærð, bláeygð, falleg stelpa
Úr augsýn erfitt er að sleppa
Hugsa um hana alla daga
vá hvað hún er með fallegan maga

sæt að utan sæt að innan
svona stelpu er erfitt að finna
heppin var ég hitt'ana hér
en hún er pottþétt ekki hrifinn af mér