Ég samdi stutta vísu um bróa því að hann hefur svo gaman af veiðum. btw hann heitir Örvar Þór

Örvar Þór er þrususkytta
Það er hjá honum siður
Vanda miðið vel svo hitta
Vargur dettur niður

Úr haglaranum hleypir
Snemma um haust
Gæsina verkar og gleypir
Gamanið endalaust.

Að vori hann veiðistöng
Helst um öxl vill bera
Dvelja á árbakka dægrin löng
Og draga inn laxa svera.