Næturnar án þín
svartir kettir
sem teygja sig frameftir
óséðir
undir sprungnum perum
veiða ló undir sófa
og vakna án þess að muna
hvar ég sofnaði

næturnar án þín
svartir kettir
læðast milli húsa
undir ratsjá sjónvarpsloftnetana
skilningslausir
um ástæðurnar

og vakna án þess að muna
hvar ég sofnaði



-
til Dísu,
af þér
óafvitandi.