Á lífsins leið, geng gegnum skugga fortíðar
Geri mistök sem ég mun iðrast síðar
Hver er ég, hver ert þú, ég veit ekki neitt
Árangurlausar tilraunir og aðferðir sem ég get ekki beitt

Hugurinn reikar burt, og eftir stend ég einn
Leita að ástæðu til að vakna á hverjum morgni
Á meðan þinn vegur liggur áfram beinn
Bíða mín hindranir á hverju horni

Þegar hafa allir snúið við mér bakinu
Ég get ekki annað en spurt mig að
Hefði ég átt að lenda í lakinu?
Voru þau mistökin sem komu öllu af stað?

Tár renna niður mínar kinnar
Hugsa um ástvini sem ég hef misst
Ætti ég að hugsa til samvisku minnar
Kannski það sé það sem ég hefði átt að gera fyrst

Nú hef ég lokið mér af, nú anda ég léttar
Hengdur í gálga iðrunar
Mínar síðustu ákvarðanir voru réttar
Og hef leitt mína nánustu til niðruna
Sjóðbullandi Sexy! Er dom í svefnherbergi Vefstjóra.