Allan daginn
beið ég eftir að sjá
andlit þitt.

Þögnin tómleikin
hékk í loftinu
ekkert heyrðist
nema þrusk saknaðarins
þegar hann kom fram
úr fylgsni sínu
og málaði haf og himinn
svörtum tónum.