Litir eru margir
Margir fallegir litir
Litir sem klikka aldrei
Aldrei mistekist að lita
Lita myndir á veggjum
Veggir stútfullir af litum
“Litum mynd!” segir stúlkan
Strákurinn segir nei
Stúlkan segir jú
Strákurinn segir já
Stúlkan og strákurinn lita
Lita þangað til ekkert hægt er að lita lengur
Þau sofna bæði í litum
Áður en þau vita af eru þau orðin litir
Litir sem allir dá og dýrka