Eitt líf, eitt tækifæri og auðvelt er að klúðra því
Því sem við fáum aðeins einu sinni, og fáum ekki ný
Verðum að vanda valið og fara réttar leiðir
Ég fór í ranga átt, og eru nú Guðirnir mér reiðir
Ég valdi þig, ég gerði mín mistök, og sé eftir þeim
Sé eftir því að hafa hlustað á þig og boðið þér heim
Þú ert sem rotnað epli með djöfullegum keim
Hvað hef ég gert þér sem er svo slæmt?
Ef ég hefði verið með þér, væri líf mitt dauðadæmt
Það er vegna þín að ég treysti ekki hverjum sem er
Sárt var að heyra að þú varst aldrei hrifin af mér
Var það bara ávani? Eyddi ég tíma í þig
Svo þú gætir bæði, niðurlægt og andlega drepið mig?
Ég varð að setja fótinn niður
Og síðan ég gerði það, hefur aldrei verið friður
Þarftu að ráðast á tilfinningar mínar
Ég hef aldrei vaðið yfir þínar
Ég hef aldrei svarað fyrir mig
Svo núna er tími til að valta yfir þig.

Þú ert hörmuleg manneskja sem ætti að deyja
Ég verð að játa það og segja
Að ég þoldi þig ekki, þú niðurlægðir mig fyrir framan vini mína
Misnotaðir mig, fyrir framan fjölskyldu þína
Notaðir mig á versta veg
Þú ert alveg hræðileg
Sættu þig við það, að þú ert ekkert fyrir mér
Ég er aðeins svört minning í höfðinu á þér
Láttu mig í friði, áður en þú gengur of langt
Þú særðir mig á hverjum degi þótt þú vissir að það var rangt
Ég lét þig komast upp með það, en núna er endurkast
Á þig, og ég mun berja árásunum í þig svo fast
Að ekkert verður eftir af þér
Ég fyllist hatri þegar þú ert nálægt mér
Ég er bitur, fullur af reiði og langar að særa þig
Á sama kvalarfulla hátt og þú særðir mig
Ég er bara ekki eins og þú ert
Ég særi þig ekki allan daginn þótt þú hóra sért
Það er þér að kenna að líf mitt er ekki lengur athyglisvert
Ég er sár eftir þig, ég þoli ekki þessar árásir frá þér
Því þær lenda allar harkalega með hvelli á hjartanu í mér.
Sjóðbullandi Sexy! Er dom í svefnherbergi Vefstjóra.