Þú birtist mér í mynd silfurblás fjalllendis.
Ég, einn, ligg undir grun.
Hvarfleitin eilífðin tjörfar sig við hélað hjarta þitt.
Skemmdarverk.
Ég reynist saklaus.

Þig syfjar
-hugur allra fyllist löngun til að svæfa þig,
ég er ekki lengur einn af þeim; ég er ekki lengur Herkúles.
Skipanir eilífðar og þarfir hollara virðast hafa yfirtekið veröld mannskepnunnar.

Mund mín er full blóði!
Ég virðist hafa gleypt við áróðri Plebé.
Plebé matar þá hungruðu, sem skortir vilja og vitsmuni til að afla sér fæðis sjálfir.
Plebé er sjálfur einn þeirra er vilja koma þér til hvílu.

Mér blöskrar!
Þú hugleiðir að sækja slátúrhús náttúrunar heim.