Ég er einn
Búinn að reka frá mér vini og ástina og er of seinn
Að ná þeim aftur, það verður ekki aftur snúið
Sannleikurinn er sársauki og verður ekki flúið
Verð að mætast veruleikanum eins og hann er
Raddirnar eru ennþá að berjast í höfðinu á mér
Ég hef misst tökin á lífi mínu
Er eins og maður sem berst fyrir sæti sínu
Fjölskyldan ekki hér, ég drap hana í stuði
Nú er hún uppi, langt uppi hjá Guði
Horfir niður með andstyggð
Að ég skuli hafa brugðist ykkar tryggð
Fyrirgefið að ég var aldrei þar
Gerið það gefið mér svar,
Verður allt eins og það var?