Um 12 leytið
labbaði ég uppí skúr
með köku í kælinn
eftir skemmtilegt afmæli
sem amma mín hélt.

Ég bjó mig undir
hið versta veður
klæddi mig í peysu
af bróður mínum
undir stakkinn.

Þegar út var komið
var bara kuldi
en það gleymdist
þegar ég sá himininn.

Ég hafði aldrei
séð neitt annað eins
hann var þakin stjörnum
sem skíndu
svo mikið og vel
stóð og starði lengi
með ipodinn í eyrunum.

En fór svo inn því mér var kalt.