Ætli ég sé ástfanginn?
Ja ég er ekki viss.
Mér finnst hún falleg,
flott og sérstök.
En það er aðeins eitt vandamál,
ég á ekki einn einasta séns.
það skiptir ekki máli.
ég vanur þessu er.
og hvort sem er,
þá á hún einhvern betri skilið.
einhvern sem elskar hana.
einhvern sem dáir hana.
einhvern sem myndi deyja fyrir hana.
ekki það að ég geri þetta ekki nú þegar.
það er bara það
að ég á erfitt með að tjá mig
um svona hluti,
og ég gæti ekki sagt henni þetta.
því ég er of feimin.
ég hef of lítið sjálfstraust.
ætli að það sé ekki bara það,
að ég er hræddur um að vera hafnað?
ég mun halda þessari tilfinningu,
dýpst inni í hjarta mínu,
alveg þar til ég dey.