Það liggur lík á auðn sálar minnar .
Skilningssljóar lifrur gægjast út úr augntóftum þess,
væru þær ekki svona ógeðslegar þætti mér þær sætar.

Það gengur maður á gresju hjarta míns.
Ilmandi rósir gægjast fram úr ermi hans,
vissi ég ekki hvað lægi þar að baki þætti mér þær indælar.

Það gengur kona í aldingarði skynsemi minnar
Hin sönnu orð eru rituð á enni hennar,
væri ég tilbúin þætti mér hún velkomin .