Hér er smá ljóð sem ég samdi, hef aldrei gert svona áður.

Farinn..

Mig langar að allt verði í lagi
Þegar þú ferð frá mér
En hvernig get ég lifað í þessum heimi
þegar þú ert ekki hér.
til þess að segja mér að ég sé elskuð
til þess að segja að allt verði í lagi
til þess að segja mér að ég eigi skilið að lifa.

Og nú þar sem þú ert farinn
Veit ég ekki hvernig ég á að lifa
Þú varst allt sem ég átti
Sá eini sem ég vildi
Sá eini sem lét mig sjá það að ég eigi skilið að lifa.

Vona að þú verðir hjá mér
Þótt að þú ert ekki á sama stað og ég
Því ég get ekki lifað án þín,
Vona að ég finni fyrir þér í harta mínu,
Finni fyrir andardrætti þínum
Finni hvernig það var
að liggja á bringunni þinni
og finnna hjartað á þér hamast.

Ég man þegar við lágum saman uppí rúmi
Þessu seinustu stund okkar saman.
Allt var svo rólegt og fullt af friði.
Þegar allt í einu brjóstið á þér hætti að hreyfast
Þegar ég sá að ég myndi aldrei sjá þig aftur.

Hvernig verður líf mitt núna
Þar sem þú ert farinn..

Endilega segið hvernig ykkur fannst.