FInndu
hvernig hjartað berst í brjósti þér,
þeysir um eins og ótemja
sem verður ei hamin.

Þú getur slegið það
og barið

En það þagnar samt ekki.

Finndu
hvernig ástin kýlir þig í magann
kærleikurinn sparkar í höfuð þér,

og hamingjan setur plástur á sárið.