Þegar ég rifnaði í sundur,
þá var ég ekki inni í mér.
Ég var úti að leika mér.
Alltaf hef ég verið úti,
og einu sinni varð ég úti.
Veistu nokkuð hvenær ég kem heim?
Kannski á morgun, sagði hún.
En það var í gær og í dag er á morgun.
Tíminn leið og við skiljum
hér við vini okkar.
Einhvern tímann týna þau leiðinni heim.
Í einhvern tíma týna þau þeim.