Kaffi, legkaka með rjóma og með.
Þegar ég fór á fætur þá fórst þú að sofa, við uxum frá hvort öðru eins og trjágreinar á stóru tréi. Mér sýnist ég vera að fara að blómstra en ég óttast um þig þegar veturinn fer að koma. Fiskarnir sem brunnu
hestarnir sem runnu
fuglarnir sem fengu
allt sem þeir vildu.
Nóttin er að fara að líða, bara nokkur ár í viðbót og sólin mun skína bjartar en nokkru sinni fyrr en svo kemur myrkrið aftur og það er engin leið út nema ein og það er ekki neikvæða leiðin sem þú heldur, heldur er það hin leiðin sem er mun skýrari.
Fiskarnir sem brunnu
hestarnir sem runnu
fuglarnir sem fengu
allt sem þeir vildu.
Tíminn er kominn, verða að flugu eða verða að manni, ekki gerast flugumaður eins og í myndinni ógurlegu sem endaði með öskri. Því fyrr sem þú gerir því fyrr-.
Láta vita þegar svar berst:
Ef einhver svarar. þá verða send
skilaboð til þín.
Útsala, útsala. 30% afsláttur á útifötum. Útilíf, Glæsibær.
Ekki segja vindurinn
ekki segja nei
ekki segja bless bless
ekki bölva mér
segðu að þú viljir mig
segðu að þú þarft
segðu að þú sjáir mig
segðu að þú sért.