í þessu ljóði legg ég orð í munn personu sem er bitur, vinstrisinnaður lopapeysu-mótmælandi.

vona að ykkur líki :)

nafn: smá ölvun

Úlfur, úlfur - hvert ferðu nú,
hver er bráðin - hvern hreppir þú?
sagan, sagan - segir sig sjálf.
að mennirnir hata - viskan er hálf.

Maður, maður - hvað gerir þú þér?
viltu ei bíða - sameinast mér?
ekki, ekki - bíta í mig
afturhaldssinni - lýgur fullan, sjálfan sig.

láttu mig, láttu mig - ekki trufla þig
safnaðu peningum - og nýttu þér mig
segðu mér, segðu mér - hvers konar ást
er sú sem maður fyrir - þarf að þjást

Ástin á metnaði
fer eftir getnaði,
ástin á (efnis)hyggju
fer niðrá bryggju
að drekkja skoðunum mínum,
til að þóknast kúgunum þínum,
drukkusokka-stjórnmálamanna ógeð.
ég hata þig.

DABS 18 ágúst 2007
hi