Við reynum að kafa djúpt í dulbúna sálina
til að finna innri hamingju og æðri tilgang

hlustum athugul á innri rödd okkar í draumi
þar sem enginn annar getur hlustað né sagt frá

mín einfalda ástæða fyrir að anda er ekki ég
því ég verð brátt ormétið kjötstykki í viðarkistu
minn tilgangur eru við og fullkomnar niðjar okkar

en hver ert þú?
“True words are never spoken”