Engill dauðans
kemur hljóðlega
sem stjörnuhrap
á bjartri vetrarnótt.

Kaldur gusturinn
frá andardrætti hans
sleikir sálina mjúkt
svo líður hún á braut.