Flæktur inní þúsund orð
með bundnar hendur og bogið bak
teygði fingur eins langt ég gat
að því sem yrði
frá því sem var.

Fann þó aðeins kaldan gust
féll á hnéin og brýndi raust:
“Snertu mig!”