Ég ligg hér að kvöldi einsamall í hlýju og notalegu rúmi
tignarlegur líkaminn hefur gefist upp í dag
því ég hef keyrt hann áfram af taumlausri þrjósku
svo daginn sem þú liggur hér geti ég veitt þér
allan þann kraft og þol sem mjúkur líkami þinn verðskuldar

Ég er sagður lifa heilbrigðu líferni
því hugsa um gæði þess sem ég borða
því ég er vinamargur og nýt mín á hátíðarstundum
því ég tek rökréttar ákvarðanir í lífinu
en enginn veit fyrir hvað ég lifi, nema þú

Cruxton
“True words are never spoken”