Ef ég bara gæti sagt þér
það sem býr í brjósti mér
ég gengi til heljar fyrir þig
bara ef þú segðist elska mig

Ef ég bara gæti ást mína tjáð
ef þú gætir bara í hjartað mitt gáð
ef ég gæti bara verið þér hjá
þá sannarlega fengirðu ást mína að sjá

Ef ég gæti bara sagt þér
hversu heitt ég þrái þig hjá mér


—

Ljóð þetta orti ég til núverandi unnustunnar minnar vorið 2006.