Mikið finnst mér þetta áhugamál vera á uppleið þessa dagana. Hér koma inn mörg góð ljóð og höfundum þeirra til sóma. Það sem kemur mér mest á óvart hve góð skáld við eigum orðið hér inni á huga. Því miður væri það ósanngjarnt að nefna nöfn sem mér finnst bera af svo ég geri það ekki. Ég bara vona að þetta haldist svona áfram og að skáld á huga sendi inn áfram góð ljóð og haldi merkjum ljóðsins uppi. Umsjónarmenn eiga líka hrós skilið fyrir vönduð vinnubrögð.