Bíða mín endalausar rastir
á hvítum feldi lengjast
og bíða
eftir þunga orða minna
flækja sig í neti tilfinninga minna hrárra

Litað blek reiði rennur eftir fletinum þornar
myndar tákn og myndir huga míns
er ég raða saman, nostra af vandvirkni
svo úr verða orð
og ljóð mitt verður til.
—–