Föstudagsblaðrið er vikulegur fundur sem ég þarf að sitja hér í vinnunni kallaður. Oft getur þetta teygst úr öllu valdi án þess að ég hafi nokkuð til málanna að leggja. Þannig var það síðasta föstudag og endaði ég á því að krota eftirfarandi á einhverja pappíra sem ég var með fyrir framan mig.



Farinn.

Floginn með lífinu, farinn.
Farinn og kem ekki meir.
Líkt og Lilja sem blómstrar að vori
lognast útaf með haustinu og deyr.


Sennilega endurspeglast þarna ósk mín um að vera einhversstaðar annarsstaðar en ég var akkúrat þá. ;)