Klökkur ég segi frá, lífi ungs krakka
semá klækjum sig brenndi
hafði til svo lítils að hlakka
hatur það eina sem lífið kenndi.

Einelti í skóla endalaust var
enginn sem vildi
vingast við hann.
Mikla byrði hann ávallt bar
brast hann og grét
enginn honum ann.