Lítil stúlka beygir sig niður,
leitar,
leitar að litlum pilti,
vini,
vonast eftir að finna'ann fljótt,
sem fyrst,
stúlkan stendur upp,
ungur maður,
fullorðinn,
áður lítill piltur,
vinur,
nú stór maður,
kunningi,
en stelpan leitar,
leitar í manninum,
veit að pilturinn býr í hjarta hans,
finnur þá ekkert,
falinn svo vel,
pilturinn týndur í manninum.
——
veit þetta er spes…
Numbing the pain for a while will make it worse when you finally feel it -Albus Dumbledore