Draumurinn fer huldu höfði,
hörfar í húsaskjól,
bíður eftir að börnin sofni,
svo geti boðið góða nótt.

Dreymir suma svart og sorglegt,
öðrum sól og gaman,
draumurinn fer huldu höfði,
hugsar, vonar að börnin sofi rótt.

Sefur svo að degi,
þreyttur eftir svarta nótt,
draumurinn lokar lúnum augum,
hann dreymir ekkert ljótt.
——
stutt og skrítið…
Numbing the pain for a while will make it worse when you finally feel it -Albus Dumbledore