Er ég fer á hugi.is
Og les þar ljóð sem notendurnir skrifa
Fyllist ég af miklu þunglyndi
Og missi alla löngun til að lifa

Orðin ríma oftast frekar illa
Og línurnar, þær passa ekki saman
Enskan slöpp, í flestum orðum villa
Af þannig lestri hef ég ekki gaman