Ljóð eftir Matthías Jochumsson :


Ég er hraustur, e´g er veikur,
ég er hryggur, glaður þó,
Ég er óhræddur, ég er smeykur,
ég er snauður, ríkur nóg.


Ég elska gjörvallt, allt þó hata,
allt ég veit og neitt ei skil,
öllu bjarga og öllu glata,
í augnabliki sama ég vil.


Ég er fús og ég er trauður,
ég ber glaður votan hvarm,
ég er lífs og ég er dauður,
ég er sæll og bý við harm.


Ég er óður, ég er hægur,
ég kýs allt og ekkert vil,
ég um alla jörð er frægur,
ég hef aldrei verið til.
“It was wonderful to find America, but it would have been more wonderful to miss it.” Mark Twain.