Ísland er frábær staður
þar færðu að heyra allskyns blaður

Þar færðu á þig skítkast, fyrir það eitt
að fá, meir en aðrir, peninga veitt

Náttúran óspjölluð, lætur í sér heyra
og kindurnar sterku geta mun meira

Og íslenskir auðmenn í náttúrunni heyra
og sjá að án hennar þeir græða mun meira

Og íslenskir auðmenn í almúga heyra
og sjá að án hans þeir græða mun meira

Sem íslenskur maður! Stoltur er ég
yfir konur og útlendinga ég veð, til að ryðja minn veg

En hver er ég að gefa öðrum skít?
Því ég er jú íslenskur sjálfur og mun eflaust ánetjast græðgi, áður en ég lífinu lýk.