[ upphitun teygjuæfingar? ]

oft þegar maður
reynir þá dettur manni
ekkineitt í hug!

-

[ einusinni var - forel drar! ]

skammast mín geng hinu
megin á götunni en
fylgist samt með þeim

-

[ gera allt nema eitt ]

hringfrestun: það er
best að hafa alltaf of
mikið að gera

vinna? klósett fyrst
fá sér pínu að borða
á leiðinni fram

taka eftir drasl
inu í vösunum, flokk-
a, raða, henda

enda svo hérna
skrifeinhverja vitleysu.
útborgað fyrsta!
-k-