Augun mín, og augun þín,
ó, þá fögru steina
mitt er þitt pg þitt er mitt.
þú vezt hvað ég meina.

Trega ég þig manna mest
mægg af táraflóði,
ó, að við hefðum aldrey sést,
elsku vinurinn góði.

Langt er síðan sá ég hann,
sannlega fríður var hann,
allt, sem prýða mátt einn mann,
mest af lýðum bar hann.

Enginn leit ég eins og þann
álma hreyti hjarta.
Einn guð veit ég elskaði hann
af öllum reit míns hjarta.

Þó að kali heitur hver,
hylji dali og jökul ber,
steinar tali og allt, hvað er,
aldrey skal ég gleyma þér.

Augað snart er tárum tært,
ttryggð í partast mola,
mitt er hjartað sárum sært,
svik er hart að þola.

Beztan veit ég blóma þinn,
blíðu innst í reitum.
Far vel Eyjafjörður minn,
fegri öllum sveitum.

Rósa úr Vatnsenda
(¯`v´¯)