Fyrir átta árum

Ennþá brennur mér í muna
meir en nokkurn skildi gruna
að þú gafst mér undir fótinn.
Fyrir sunnan fríkirkjuna
fórum við á stefnumótin


En ég var bara, eins og gengur,
ástfanginn og saklaus drengur.
Með söknuði ég seinna fann að
við hefðum getað vakað lengur
og verið betri hvort við annað.

Svo var það fyrir átta árum
að ég kvaddi þig með tárum
daginn sem þú ilgdir héðan.
Harmaljóð ú hafsins bárum
hjarta mínu fylgdi á meðan.

En hver veit nema ljósir lokkar,
lítill kjóll og stuttir sokkar
hittist fyrir hinumegin?
Þá getum við í gleði okkar
gengið suður Laufásveginn.

Eftir Tómas Guðmundsson
(¯`v´¯)