Auðir bíða vegirnir

Auðir bíða vegirnir um skóginn
eftir léttum fótum þínum
hljóður bíður vindurinn í dimmunni
eftir björtum lokkum þínum
þögull bíður lækurinn
eftir heitum vörum þínum
grasið bíður döggvott
og fuglarnir þegja í trjánum

augu okkar mætast

milli okkar fljúga svartþrestir
með sólblik á vængjum.


Snorri Hjartarson


Alveg elska etta ljóð þvílik snilld og Snorri Hjartarsson er besti íslenski ljóða höfundur sem ég hef kynnst


MooN|DollY [T]