Milli þils og moldarveggja
man ég eftir þeim,
ljótu rottunum
með löngu skottunum
og stóru tönnunum
sem storka mönnunum,
sem ýla og tísta
og tönnum gnísta
og naga og naga
nætur og daga.

Fjöldi manna
felur sig bak við tjöldin.
Þeir narta í nágrannanna,
niðra þeim sem hafa völdin,
eiga holu í hlýjum bæjum,
hlera og standa á gægjum,
grafa undan stoðum sterkum,
stoltir af sínum myrkraverkum.
Allar nætur, alla daga
er eðli þeirra og saga
að líkjast rottum
með löngum skottum
og naga og naga.

Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
“Suicide hotline… Please hold”