Lyng Gott er að leggjast í lyngið,
Sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
Í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströmd
og hylur þig í gleymsku.

Snorri Hjartarson