Hamingjan er ekki til sölu:
Fljúgið of heim allan
Gangið búð úr búð
-engin hamingja

Hamingja er það ódúrasta sem til er:
Kostar ekkert
-það dýrasta
kostar allt

Hamingjan er alstaðar og hvergi:
Í ofurlítilli tó undir norðurásnum
Á hafi úti
Við þitt brjóst.


Höf:Jóhannes úr Kötlum