Jæja, ég var að horfa á sjónvarpið í gærkvöldi og þá kom auglýsingin frá umferða-eitthvað….þar sem bílar voru að keyra og andlit af dauðu fólki á götunum (af fólki sem hefur væntanlega átt að hafa dáið í bílslysi)
Og mér finnst þessi auglýsing illa gerð, því lagið sem er í henni er ljóð eftir Vatnsenda-Rósu.
Þetta ljóð er um ástarsorg…..hvernig tengist ástarsorg bílslysi?
Jú kannski ef þú missir ástvin….en það er ekki alveg það sama og ástarsorg :S

En allaveganna……þá fann ég textann ;)


Augað mitt og augað þitt,
og þá fögru steina.
Mitt er þitt, og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.

Trega ég þig manna mest
mædd af táraflóði.
Ó, að við hefðum aldrei sést,
elsku vinurinn góði.

Langt er síðan sá ég hann,
sannlega fríður var hann.
Allt sem prýða mátti einn mann
mest af lýðum bar hann.

Engan leit ég eins og þann
álma hreyti bjarta.
Einn guð veit ég elskaði hann
af öllum reit míns hjarta.

Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.

Augað snart er tárum tært,
tryggð í partast mola,
mitt er hjartað sárum sært,
svik er hart að þola.

Bestan veit ég blóma þinn,
blíðu innst í reitum.
Far vel, Eyjafjörður minn,
fegri öllum sveitum.
"All we have to decide is what we do with the time that is given to us"