Ljóð sem er gagnsætt
eða ljóð sem er þungt.
Ljóð sem að rímar
eða ljóð sem að hefur ekki neina hrynjandi.
Ljóð sem er form
eða ljóð sem er innihald.
Ljóð sem er stílhreint
eða ljóð sem veit ekki í hvaða stefnu það liggur og leysist uppupp í yfirlæti og aldagömlum saurheilum smáborgara og
ö ö ss k k rr aa rr
öö s k k r r a a r r
ö ö s k k r r aaaaaa r r
ö ö s k k r r a a r r
öö öö k k r r a a r r
í gremju yfir að mega ekki vera lítið og látlaust, en þó dáldið stolt, án þess að vera ómerkilegt og með minnimáttarkennd rotnandi í pokahorninu.
%MYND coollogo_com.26794102.gif%